Á hverju korti eru 2 skilríki:
Auðkenningarskilríkin eru hugsuð til að auðkenna sig inn á t.d. ýmis vefsvæði og eiga að leysa af hólmi Auðkennis- og veflykla sem hafa verið í gangi hjá bönkum og opinberum aðilum.

Undirritunarskilríkin eru hugsuð til þess að undirrita rafrænt ýmis skjöl og eiga eftir að hafa gríðarlega hagræðingu í för með sér í náinni framtíð. Nú þegar er hægt að undirrita ýmis skjöl eins og t.d. PDF og Word og hafa þessar rafrænu undirritanir jafn lagaleg gildi og handskrifaðar undirritanir.