Umsókn og afhending einkaskilríkja gengur þannig fyrir sig:
- Umsókn er fyllt út á umsóknarvefnum og send rafrænt til Auðkennis.
- Auðkenni samþykkir, hafnar eða óskar frekari sannvottunar á upplýsingum í umsókn.
- Ef umsókn er samþykkt er gengið frá greiðslu fyrir kortið til Auðkennis.
- Kortið er sent í það bankaútibú sem valið var í umsókninni.
- Leiðbeiningar um hvernig sækja á PUK númer í netbanka er sent á netfang umsækjanda.
- Umsækjandi mætir í bankaútbú.
- Umsækjandi verður að hafa með sér PUK númer, vegabréf eða ökuskírteini með skýrri mynd.
- Hjá skráningarfulltrúa í bankanum fer fram vottun á persónu, undirritun sérstaks samnings, virkjun á skilríkjum og afhending á korti.